LÖGFRÆÐISTOFA SELFOSS
  • Heim
  • Stofan
  • Lögmenn
  • Hafa samband
Picture

Öll almenn lögfræðiþjónusta og ráðgjöf fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir. 

Picture

Fjölskyldu- og erfðamál

Við sinnum hagsmunagæslu fyrir foreldra í forsjármálum sem og í deilum um lögheimili eða umgengni. 

Við gerum kaupmála og samninga vegna skilnaðar eða sambúðarslita.

Við gerum einnig erfðaskrár, aðstoðum við dánarbússkipti og tökum að okkur hagsmunagæslu fyrir erfingja.
Picture

Sakamál

Við sinnum verjanda- og réttargæslustörfum í sakamálum. Höfum yfirgripsmikla sérhæfingu á þessu sviði bæði á rannsóknarstigi og fyrir dómi.

Tökum einnig að okkur gerð bótakrafna í sakamálum.
Picture

Útlendingamál

Við veitum víðtæka ráðgjöf á sviði útlendingamála. Við sinnum réttindagæslu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd auk þess sem við aðstoðum innflytjendur við að sækja um dvalarleyfi og ríkisborgararétt.

Þá tökum við að okkur ýmiskonar aðstoð og ráðgjöf á þessu sviði, m.a. vegna áritunarmála og brottvísunarmála.


Lögfræðistofa Selfoss ehf.        
Austurvegi 20, 800 Selfoss      
​
Sími: 539 3937                                   
  • Heim
  • Stofan
  • Lögmenn
  • Hafa samband