STOFANLögfræðistofa Selfoss er staðsett í nýja miðbænum í hjarta Selfoss. Stofan er í eigu Kristrúnar Elsu Harðardóttur lögmanns. Kristrún útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2010 og fékk réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi sama ár. Hún hlaut réttindi til málflutnings fyrir Landsrétti í maí 2023. Kristrún hefur einnig réttindi sem löggiltur fasteignasali auk þess að hafa MBA gráðu frá Háskóla Íslands.
Kristrún hefur starfað við lögmennsku um árabil en sem sjálfstætt starfandi lögmaður frá árinu 2014 og hefur flutt fjölda mála fyrir dómstólum landsins. Þá hefur Kristrún setið í ýmsum stjórnum og gegnt formennsku í Félagi kvenna í lögmennsku. Kristrún var kosin í yfirkjörstjórn í Suðurkjördæmi í mars 2022 og situr einnig í laganefnd Lögmannafélags Íslands síðan vorið 2021. Kristrún hefur flutt fjölda fyrirlestra, bæði hérlendis og erlendis, sem varða útlendingamál, störf lögmanna í sakamálum og stöðu kvenna í lögmannastétt. |