
Stofan
Um stofuna
Lögfræðistofa Selfoss er lögmannsstofa í Miðgarði á Selfossi sem leggur áherslu á gæði, persónulega nálgun og vandaða þjónustu. Á stofunni starfa tveir lögmenn auk laganema.
Bakgrunnur
Stofan er í eigu Kristrúnar Elsu Harðardóttur lögmanns. Kristrún útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2010 og fékk réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi sama ár. Hún hlaut réttindi til málflutnings fyrir Landsrétti í maí 2023. Kristrún hefur einnig réttindi sem löggiltur fasteignasali auk þess að hafa MBA gráðu frá Háskóla Íslands.
Kristrún hefur starfað við lögmennsku um árabil en sem sjálfstætt starfandi lögmaður frá árinu 2014 og hefur flutt fjölda mála fyrir dómstólum landsins. Þá hefur Kristrún setið í ýmsum stjórnum, s.s. yfirkjörstjórn í Suðurkjördæmi og stjórn Félags kvenna í lögmennsku. Kristrún gegnir nú formennsku í laganefnd Lögmannafélags Íslands.
Kristrún hefur flutt fjölda fyrirlestra, bæði hérlendis og erlendis, sem varða útlendingamál, störf lögmanna í sakamálum og stöðu kvenna í lögmannastétt.
Sérsvið
Stofan sinnir allri almennri lögfræðiráðgjöf- og þjónustu. Áherslur stofunnar snúa helst að persónulegum málum, s.s. sakamálum, fjölskyldu- og erfðamálum, skiptastjórn, lögræðismálum o.fl.
Við leggjum áherslu á að veita alltaf hágæða þjónustu sem er í senn fagleg og persónuleg.